Að rækta hrifnæmið

Að rækta hrifnæmið
Agnes Ársæls.

Þriðjudaginn 7. janúar kl. 17-17.40 heldur myndlistarkonan Agnes Ársæls Þriðjudagsfyrirlestur undir yfirskriftinni Að rækta hrifnæmið. Í fyrirlestrinum mun Agnes leggja áherslu á ferli og vinnuaðferðir í eigin listsköpun í tengslum við valin verk. Einnig mun hún ræða reynslu sína af samstarfi við aðra listamenn og mikilvægi þess að hrífast í daglegu lífi. 

Agnes Ársæls vinnur og starfar í Reykjavík. Hún útskrifaðist með BA gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands 2018 og stundar nú mastersnám í sýningarstjórnun við Háskóla Íslands. Verk Agnesar hafa verið sýnd á Íslandi og erlendis. Meðal nýlegra sýninga má nefna Spor og Þræðir í Listasafni Reykjavíkur, Sequences X sem meðlimur listasamsteypunnar Ræktin, Óskilamunir í Midpunkt og In Context: Compost í In Context vinnustofudvölinni í Slanic-Moldova. 

Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri, Gilfélagsins, Menntaskólans á Akureyri, og Myndlistarfélagsins á Akureyri. Aðrir fyrirlesarar vetrarins eru Stefán Þór Sæmundsson, rithöfundur og íslenskukennari, Marta Nordal, leikhússtjóri, Andrea Weber, myndlistarkona, Einar Sigþórsson, arkitekt, og Hyo Jung Bea, myndlistarkona.