Akademíur: Málþing um Þorvald Þorsteinsson

Akademíur: Málþing um Þorvald Þorsteinsson
Þorvaldur Þorsteinsson.

Laugardaginn 13. febrúar kl. 14-16 efnir Listasafnið á Akureyri til málþings í tilefni yfirlitssýningar á verkum Þorvaldar Þorsteinssonar, Lengi skal manninn reyna.

Málþingið er öllum opið, það verður haldið í sal 10 og gildir aðgangseyrir að safninu, en frítt er fyrir handhafa árskorts og Vini Listasafnsins. Einnig verður hægt að fylgjast með á Zoom. Engin skráning er á málþingið en þeir sem vilja nýta sér Zoom smellið HÉR. Sigurjón B. Hafsteinsson, prófessor í safnarfræði við Háskóla Íslands, hefur umsjón með útsendingunni. Fundarstjóri er Guðrún Pálína Guðmundsdóttir og á mælendaskrá eru Hlynur Hallsson, safnstjóri Listasafnsins á Akureyri, Ágústa Kristófersdóttir, sýningarstjóri, Ragna Sigurðardóttir, rithöfundur og myndlistarmaður, Þorgeir Tryggvason, textahöfundur, Arna Valsdóttir, myndlistarmaður og kennari, og Finnur Arnar, myndlistarmaður og höfundur og leikstjóri Engilsins

Þorvaldur Þorsteinsson var afkastamikill listamaður og kennari sem nýtti sér flesta miðla í listsköpun. Auk þess að fást við myndlist samdi hann skáldsögur, leikrit, ljóð og tónlist og varð landsþekktur fyrir Vasaleikhúsið sem flutt var í Ríkisútvarpinu 1991 og síðar sýnt í sjónvarpi. Skáldsaga hans, Skilaboðaskjóðan, sló einnig rækilega í gegn þegar hún kom út 1986 og var síðar færð í leikbúning og sýnd í Þjóðleikhúsinu sem söngleikur 1993. Fjórar bækur Þorvaldar um Blíðfinn hafa verið þýddar á fjölda tungumála og Borgarleikhúsið setti upp leikrit hans And Björk of Course 2002. Hann hélt margar einkasýningar, jafnt á Íslandi sem erlendis, og tók þátt í alþjóðlegum samsýningum víða um heim. 

Lengi skal manninn reyna stendur yfir til 11. apríl næstkomandi og er samstarfsverkefni Listasafnsins og Hafnarborgar í Hafnarfirði, en þar verður sýningin sett upp haustið 2021. Hún hlaut styrk frá Safnasjóði 2020. 

Dagskrá málþingsins 

Kl. 14.00
Ávarp safnstjóra
Hlynur Hallsson

Kl. 14.05
Ég er með mikilvæg skilaboð
Ágústa Kristófersdóttir, sýningarstjóri 

Kl. 14.10 
Ég gef þér leyfi 
Ragna Sigurðardóttir, rithöfundur og myndlistarmaður 

Kl. 14.20
Ævintýrareglur – Þorvaldur í leikhúsinu og leikhúsið í vasanum 
Þorgeir Tryggvason, textahöfundur 

Kl. 14.30
Viltu leika? Um þýðingu leiksins í lífi og list Þorvaldar
Arna Valsdóttir, myndlistarmaður og kennari

Kl. 14.40
Um Engilinn á sviðinu
Finnur Arnar, myndlistarmaður og höfundur og leikstjóri Engilsins 

Kl. 14.50
Spurningar og umræður 

Kl. 16.00
Málþingi lokið