Ennio Morricone - In Memoriam

Laugardaginn 30. apríl kl. 17 fara fram í sal 10 tónleikar til heiðurs ítalska kvikmyndatónskáldsins, Ennio Morricone. Þar flytja þau Daniele Basini, Jón Þorsteinn Reynisson og Steinunn Arnbjörg Stefánsdóttir tónlist Morricone í útsetningum Basini og má þar m.a. heyra tónlist úr Nuovo Cinema Paradiso, Once Upon a Time in America og nokkrum góðum spaghettí-vestrum. Myndskeiðum úr bíómyndum Sergios Leone og Giuseppes Tornatore verður varpað á meðan á tónleikunum stendur.

Miðaverð er kr. 3.000, en nemendur úr Tónlistarskólanum og Myndlistaskólanum fá frítt inn. Verkefnið er styrkt af Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra, Listasafninu á Akureyri og Det italienske kulturinstitutt i Oslo.