Fjölskylduleiðsögn

Laugardaginn 16. desember kl. 11-12 verður boðið upp á fjölskylduleiðsögn í Listasafninu, Ketilhúsi. Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, fræðslufulltrúi, segir börnum og fullorðnum frá sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur, Stúlka með hjól. Að lokinni leiðsögn er gestum boðið að búa til sitt eigið listaverk, innblásið af verkum listakonunnar.

Aðgangur er ókeypis.