Fjölskylduleiðsögn

Sunnudaginn 11. október kl. 11-12 verður fjölskylduleiðsögn í Listasafninu. Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, fræðslufulltrúi, segir börnum og fullorðnum frá yfirlitssýningu á verkum Þorvaldar Þorsteinssonar, Lengi skal manninn reyna. Að lokinni leiðsögn er gestum boðið í skemmtilegan leik um sýninguna.

Aðgangur er ókeypis í boði Norðurorku sem styrkir sérstaklega safnkennslu í Listasafninu. Hámark 20 fullorðnir. Gætum að sóttvörnum.