Fjölskylduleiðsögn á sunnudaginn

Sunnudaginn 29. janúar kl. 11-12 verður boðið upp á fjölskylduleiðsögn í Listasafninu. Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, fræðslufulltrúi, segir börnum og fullorðnum frá sýningu Kristínar Jónsdóttur frá Munkaþverá, Vatnið og landið, og samsýningunni Solander 250: Bréf frá Íslandi, og fjallar um einstaka verk. 

Að lokinni leiðsögn er gestum boðið að búa til sitt eigið listaverk, innblásið af verkum sýningarinnar. Aðgangur er ókeypis í boði Norðurorku sem styrkir fræðslustarf Listasafnsins.