Fjölskylduleiðsögn á sunnudaginn

Sunnudaginn 12. september kl. 11-12 verður boðið upp á fjölskylduleiðsögn um sýninguna Ferðagarpurinn Erró. Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, fræðslufulltrúi, segir börnum og fullorðnum frá sýningunni og einstaka verkum. Að lokinni leiðsögn er gestum boðið í skemmtilegan leik um sýninguna.

Takmarka þarf fjölda foreldra og forráðamanna og virða eins metra regluna. Fólk er beðið að virða núgildandi sóttvarnarreglur yfirvalda í hvívetna. Sjá nánar á www.covid.is

Viðburðurinn er styrktur af Norðurorku sem styrkir sérstaklega safnkennslu og fræðslu fyrir börn og fullorðna í Listasafninu.