Fyrsti Þriðjudagsfyrirlestur ársins

Fyrsti Þriðjudagsfyrirlestur ársins
Sunna Svavarsdóttir.

Sunna Svavarsdóttir, myndlistarmaður, heldur fyrsta Þriðjudagsfyrirlestur ársins, þriðjudaginn 2. febrúar kl. 17-17.40, og verður honum streymt hér á heimasíðu Listasafnsins og á Facebook. Í fyrirlestrinum, sem ber yfirskriftina Gleymdu skynfærin, mun Sunna fjalla um einstaklingsbundnar upplifanir. 

Sunna Svavarsdóttir lauk BA námi frá ArtScience Interfaculty, Royal Academy of Art í Haag í Hollandi 2019 og hefur tekið þátt í samsýningum þar í landi síðastliðið ár. Hún vinnur þverfaglega og hefur einbeitt sér að innsetningum og upplifunum þar sem gestum er boðið að stíga inn, taka þátt og jafnvel þefa og snerta. Flest verka hennar er hægt að upplifa með augun lokuð.

Smelltu HÉR til þess að horfa á fyrirlesturinn.

Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri, Gilfélagsins og Myndlistarfélagsins á Akureyri. Aðrir fyrirlesarar vetrarins eru Þóra Sigurðardóttir, sýningarstjóri, Aðalsteinn Þórsson, myndlistarmaður, Magni Ásgeirsson, tónlistarmaður, Seung-hee Lee, myndlistarmaður, og Vilhjálmur B. Bragason og Sesselía Ólafsdóttir, Vandræðaskáld.

Dagskráin:

2. febrúar: Sunna Svavarsdóttir, myndlistarmaður   
9. febrúar: Þóra Sigurðardóttir
16. febrúar: Hafdís Helgadottir
23. febrúar: Seung hee Lee, myndlistarmaður                 
2. mars: Vandræðaskáld, Vilhjálmur B. Bragason og Sesselía Ólafsdóttir         
9. mars: Aðalsteinn Þórsson, myndlistarmaður         
16. mars: Magni Ásgeirsson, tónlistarmaður