Leiðsögn í Listasafninu

Leiðsögn verður í Listasafninu fimmtudaginn 5. mars kl. 12.15 - 12.45 um yfirlitssýningu Elísabetar Geirmundsdóttur, Listakonan í Fjörunni. Sýningunni lýkur næstkomandi sunnudag, 8. mars, og því er um síðustu leiðsögnina að ræða. Guðrún Pálína Guðmundsdóttir, fræðslufulltrúi, og Ásgrímur Ágústsson, sonur Elísabetar, taka á móti gestum og fræða þá um sýninguna og einstaka verk. Aðgangur er ókeypis.

Elísabet Geirmundsdóttir var fjölhæf alþýðulistakona sem ef til vill er þekktust fyrir höggmyndir sínar þó hún gerði einnig málverk og teikningar auk þess að  myndskreyta bækur, hanna hús og merki og semja ljóð og lög.

Sýningin er unnin í samvinnu við Minjasafnið á Akureyri og fjölskyldu Elísabetar. Sýningarstjóri er Hlynur Hallsson. Sýningin stendur til 8. mars og er opin þriðjudaga - sunnudaga kl. 12-17. Aðgangur er ókeypis