Iðunni veitt heiðursviðurkenning Menningarsjóðs

Iðunni veitt heiðursviðurkenning Menningarsjóðs
Frá Vorkomu Akureyrarstofu.

Á Vorkomu Akureyrarstofu á sumardaginn fyrsta var tveimur einstaklingum sem hafa með framlagi sínu stutt við og auðgað menningarlíf bæjarins veitt heiðursviðurkenning Menningarsjóðs. Þetta eru myndlistarkonan Iðunn Ágústsdóttir sem lauk nýlega umfangsmikilli einkasýningu í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi, og Gunnar Frímannsson sem hefur komið að starfi Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands frá upphafi og lagt sitt lóð á vogarskálarnar við uppbyggingu sveitarinnar.

Iðunn Ágústsdóttir er fædd og uppalin á Akureyri, dóttir Elísabetar Geirmundsdóttur sem oft er nefnd listakonan í Fjörunni. Iðunn hefur fengist við myndlist síðan 1977 en fyrsta einkasýning hennar var haldin 1979 í Gallerí Háhól. Iðunn var einn meðlima Myndhópsins sem stofnaður var árið 1979 og var hún meðal annars formaður hans og gjaldkeri um tíma. Iðunn vann aðallega með olíuliti og pastelkrít í verkum sínum. Hennar helstu viðfangsefni á ferlinum eru landslagið, náttúran, fólk og hið dulræna. Hún hefur haldið fjölmargar einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga bæði hérlendis og erlendis. Flest verka Iðunnar eru í einkaeigu en einnig í eigu ýmissa fyrirtækja og stofnana hér heima og erlendis.

Við sama tækifæri var tilkynnt um val á bæjarlistamanni Akureyrar 2015-2016 og varð tónlistarkonan Lára Sóley Jóhannsdóttir þess heiðurs aðnjótandi. Fjöldi spennandi verkefna bíða Láru Sóleyjar, m.a. tilraunir með samruna raftónlistar og klassískrar tónlistar. Einnig voru veittar viðurkenningar Húsverndarsjóðs og Byggingalistaverðlaun. Viðurkenningu Húsverndarsjóðs hlaut Hús Hákarla Jörundar í Hrísey en einnig fékk Ásgeir Halldórsson sérstaka viðurkenningu Húsverndarsjóðs fyrir ómetanlegt framlag sitt og elju við endurbyggingu hússins. Byggingalistaverðlaun Akureyrar fékk arkitektastofan Kollgáta fyrir Íþróttamiðstöðina í Hrísey. 

Á Vorkomunni veitti atvinnumálanefnd Akureyrar einnig atvinnu- og nýsköpunarviðurkenningar. Kælismiðjan Frost ehf hlaut athafnaviðurkenningu Akureyrarbæjar. Fyrirtækið hefur verið í fararbroddi í uppbyggingu og þjónustu kælikerfa frá árinu 1993, en á rætur að rekja til ársins 1984. Fyrirtækið er stærsta fyrirtæki sinnar tegundar á landinu og sinnir verkefnum og þjónustu um allt land, sem og erlendis. Nýsköpunarviðurkenningin kom í hlut fyrirtækisins Sveinbjargar sem stofnað var árið 2007. Fyrirtækið framleiðir íslenskar hönnunarvörur og hefur verið í örum vexti síðustu ár. Vörulína fyrirtækisins er hönnuð af Sveinbjörgu Hallgrímsdóttur myndlistarkonu og eru ríflega 140 ólíkar vörur úr smiðju hennar seldar bæði á Íslandi og erlendis.

Á meðfylgjandi mynd eru í fremri röð talið frá vinstri: Iðunn Ágústsdóttir, Lára Sóley Jóhannsdóttir og Linda María Ásgeirsdóttir sem tók við viðurkenningu fyrir hönd föður síns Ásgeirs Halldórssonar. Aftari röð frá vinstri: Ingólfur Freyr Guðmundsson frá Kollgátu, Bragi H. Kristinsson frá Kælismiðjunni Frosti, Sveinbjörg Hallgrímsdóttir, Elín H. Gísladóttir forstöðumaður Sundlauga Akureyrar, Guðríður Friðriksdóttir framkvæmdastjóri Fasteigna Akureyrarbæjar og Gunnar Frímannsson.