Jazz á föstudaginn

Föstudaginn 31. ágúst kl. 21 verða jazz tónleikar með The Jazz Standard Quartet í Gili kaffihúsi í anddyri Listasafnsins.

Hljómsveitina skipa Dimitrios Theodoropoulos á gítar, Ludvig Kári Forberg á víbrafón, Stefán Ingólfsson á bassa og Rodrigo Lopez á trommur. Þeir félagar spila m.a. tónlist eftir Thelonious Monk, Tiny Grimes, Lou Donaldson, Clare Fischer, Steve Swallow, Milt Jackson á meðal annarra. Aðgangur er ókeypis.