Leiðsögn á fimmtudaginn

Leiðsögn á fimmtudaginn
Frá opnun um síðustu helgi.

Fimmtudaginn 27. apríl kl. 12.15-12.45 verður boðið upp á leiðsögn í Listasafninu, Ketilhúsi um Sköpun bernskunnar 2017 og Uppútskriftarsýningu listnáms- og hönnunarbrautar VMA. Guðrún Pálína Guðmundsdóttir, fræðslufulltrúi, tekur á móti gestum og fræðir þá um sýningarnar og einstaka verk. Aðgangur er ókeypis.