Leiðsögn á fimmtudaginn

Fimmtudaginn 2. nóvember kl. 12.15-12.45 verður boðið upp á leiðsögn í Listasafninu, Ketilhúsi um sýningar Rúrí, Jafnvægi-Úr Jafnvægi, og Friðgeirs Helgasonar, Stemning. Hlynur Hallsson, safnstjóri, tekur á móti gestum og fræðir þá um sýningarnar og einstaka verk. Aðgangur er ókeypis.