Leiðsögn á fimmtudegi

Fimmtudaginn 1. febrúar kl. 12.15-12.45 verður boðið upp á leiðsögn í Listasafninu, Ketilhúsi um sýningu á verkum Louisu Matthíasdóttur, Stúlka með hjól. Guðrún Pálína Guðmundsdóttir, fræðslufulltrúi, tekur á móti gestum og fræðir þá um sýninguna og einstaka verk. Aðgangur er ókeypis.