Leiðsögn á fimmtudegi

Fimmtudaginn 5. apríl kl. 12.15-12.45 verður boðið upp á leiðsögn um samsýninguna Sköpun bernskunnar 2018 og sýningu Bergþórs Morthens, Rof. Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, fræðslufulltrúi, tekur á móti gestum og fræðir þá um sýningarnar og einstaka verk. Aðgangur ókeypis.