Leiðsögn í Listasafninu

Fimmtudaginn 8. desember kl. 12.15-12.45 verður boðið upp á leiðsögn í Listasafninu um sýningar Ásdísar Sifjar Gunnarsdóttur, Sýn í þokunni, og Joan Jonas, Eldur og saga, 1985. Heiða Björk Vilhjálmsdótti, fræðslufulltrúi, tekur á móti gestum og fræðir þá um sýningarnar. Aðgangur er ókeypis.