Leiðsögn um Fólk / People

Fimmtudaginn 28. apríl kl. 12.15-12.45 verður boðið upp á leiðsögn í Listasafninu á Akureyri um ljósmyndasýninguna Fólk / People, en þar sýna sjö ólíkir listamenn verk sín. Hlynur Hallsson safnstjóri tekur á móti gestum og fræðir þá um sýninguna. Aðgangur er ókeypis.

Listamennirnir eru Barbara Probst, Hallgerður Hallgrímsdóttir, Hrafnkell Sigurðsson, Hrefna Harðardóttir, Hörður Geirsson, Ine Lamers og Wolfgang Tillmans. Sýningarstjóri er Hlynur Hallsson. Sýningin stendur til 29. maí.