Listamannaspjall með Birgi Snæbirni Birgissyni

Alþjóðlegu samsýningunni Nánd lýkur næstkomandi sunnudag 22. maí. Af því tilefni verður boðið upp á listamannaspjall með einum af listamönnum sýningarinnar, Birgi Snæbirni Birgissyni, kl. 15 síðasta sýningardaginn. Þar mun Hlynur Hallsson, safnstjóri, ræða við Birgi um sýninguna og einstaka verk.

Á sýningunni Nánd er athyglinni beint að innri rökfærslum listmálunar sem eru staðsettar, skuldbundnar og innbyggðar. Á sýningunni fellur allt saman í þeim tilgangi að skapa og miðla stöðum og aðstæðum fyrir málverk til að vera og verða – að anda inn og anda út, með áhorfandanum og staðnum. 

Markmiðið er að yfirgefa hugmyndina um fjarlægt hlutleysi og færa sig nær þátttökureynslu – hinni krefjandi en ánægjulegu leið frá aðskilnaði til nándar, frá fjarveru til þátttöku.

Sýningin mun bjóða þér að vera með. Breytum sjónarhorninu og látum koma okkur á óvart. Einbeitum okkur að því sem er einstakt, sem hvetur okkur til að njóta tilrauna sem færa okkur á áður óþekkta staði. Nánd hvílir í ánægjunni við að skapa og miðla stöðum og aðstæðum til að vera með málverkum. 

Þátttakendur: Birgir Snæbjörn Birgisson, Emil Holmer, Heidi Lampenius, Onya McCausland, Miikka Vaskola, Þórdís Erla Zoëga. 

Sýningarstjóri: Mika Hannula.