Listasafnið á Akureyri tilnefnt til Eyrarrósarinnar

Listasafnið á Akureyri hlaut í dag tilnefningu til Eyrarrósarinnar 2015 þegar birtur var listi með nöfnum þeirra tíu sem tilnefndir eru. Þann 18. mars næstkomandi verður listinn styttur niður í þrjú nöfn og eitt þeirra hlýtur að lokum Eyrarrósina sem Dorrit Moussaieff forsetafrú, verndari Eyrarrósarinnar, afhendir með viðhöfn laugardaginn 4. apríl á Ísafirði.

Í fyrstu verðlaun eru 1.650.000 krónur og flugferðir innanlands frá Flugfélagi Íslands. Hin tvö verkefnin hljóta peningaverðlaun og flugferðir frá Flugfélagi Íslands.

Eyrarrósin er viðurkenning sem veitt er framúrskarandi menningarverkefni á starfssvæði Byggðastofnunnar. Hún beinir sjónum að og hvetur til menningarlegrar fjölbreytni, nýsköpunar og uppbyggingar á sviði menningar og lista. Að verðlaununum standa Byggðastofnun, Flugfélag Íslands og Listahátíð í Reykjavík.

Eyrarrósarlistinn 2015

  • Braggast á Sólstöðum                                
  • Nes Listamiðstöð
  • Ferskir vindar                                              
  • Orgelsmiðjan á Stokkseyri
  • Frystiklefinn                                                
  • Sköpunarmiðstöð á Stöðvarfirði
  • Listasafn Árnesinga                                    
  • Verksmiðjan á Hjalteyri
  • Listasafnið á Akureyri                                
  • Þjóðlagasetrið á Siglufirði