Síðasti upplestur á Blíðfinni

Næstkomandi sunnudag, 4. október, kl. 15 mun Marta Nordal, leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar, ljúka lestri á barnabók Þorvaldar Þorsteinssonar, Ég heiti Blíðfinnur en þú mátt kalla mig Bóbó, á Kaffi og list í anddyri Listasafnsins. Áður en lesturinn hefst mun hún rifja upp þá kafla sem lesnir voru síðustu vikur. Enginn aðgangseyrir.