Þriðja rafræna listasmiðjan komin í loftið

Þriðja rafræna listasmiðjan komin í loftið
Vilhjálmur B. Bragason.

Þriðja rafræna listasmiðja Listasafnsins undir yfirskriftinni Sköpun utan línulegrar dagskrár er nú komin í loftið. Að þessu sinni hefur Vilhjálmur B. Bragason, leikari, leikskáld og tónlistarmaður umsjón með smiðjunni. 

Verkefnið felst í því að bjóða fjölskyldum að taka þátt í rafrænni listsmiðju á vegum Listasafnsins á Akureyri. Í samvinnu við sína nánustu fá börn tækifæri til að skapa sitt eigið listaverk óháð stað og stund. Lögð er áhersla á að þátttakendur fá að sýna afraksturinn á sérstakri sýningu sem sett verður upp í Listasafninu. 

Frábært tilefni fyrir fjölskyldur að njóta samveru og skapa utan línulegrar dagskrár. 

HÉR má sjá smiðjuna.

Leiðbeiningar: 

  • Fjölskyldan horfir saman á listsmiðjuna. Myndbandið er aðgengilegt hér á heimasíðu Listasafnsins á Akureyri og á samfélagsmiðlum.
  • Í sameiningu vinnur fjölskyldan sína eigin útgáfu af verkinu á þeim tíma sem hentar best.
  • Ekki er nauðsynlegt að koma í safnið, notast má við listaverk sem til eru heima eða finna verk á netinu.
  • Þegar listaverkið er tilbúið má koma með það í móttöku Listasafnsins á Akureyri. Opið er alla daga frá kl. 12 til 17.
  • Skila þarf verkum fyrir 5. október 2022 og passa að þau séu merkt.
  • Laugardaginn 8. október 2022 opnar sýning á verkunum í safnfræðslurými safnsins.
  • Allir sem skila inn listaverki fá glaðning.
  • Sýningu lýkur 6. nóvember 2022 og þá fá listamenn verkin sín til baka. 

Ef spurningar vakna má hafa samband við Heiða Björk Vilhjálmsdóttur, fræðslufulltrúa, á netfangið heida@listak.is.

Verkefnið er styrkt af SSNE.