Þriðjudagsfyrirlestur: Claudia Mollzahn

Þriðjudagsfyrirlestur: Claudia Mollzahn
Claudia Mollzahn.

Þriðjudaginn 16. febrúar heldur þýska textíllistakonan Claudia Mollzahn Þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu á Akureyri, Ketilhúsi, undir yfirskriftinni Textiles in Movement. Þar fjallar hún um þroskaferli sitt í listinni með því að skoða eigin verk og tilvísanir í listamenn sem hafa haft áhrif á hana. Aðgangur er ókeypis.

Claudia notar hefðbundnar handverksaðferðir í verkum sínum: prjón, hekl og þæfingu; ullargarn og efni. Aðferðir hennar hafa þróast innan þess sögulega samhengis sem tengist ullarframleiðslu og ullarvinnslu í Wales en þar hefur hún verið búsett síðan 1992. Listrænar rætur Claudiu liggja í handverkinu en hún hefur einnig unnið með vídeó, ljósmyndir, leir og gjörninga. Hún hefur unnið mikið með fjölfötluðu fólki og  hefur sú vinna haft afar sterk áhrif á bæði listsköpun hennar og persónu.

Claudia lauk framhaldsmenntun í fullorðinsfræðslu frá University of Wales College Newport 1997 og í textíllist frá Swansea Metropolitan University, Wales 2012. Hún dvelur um þessar mundir í gestavinnustofu Gilfélagins í Listagilinu.

Þetta er fimmtándi Þriðjudagsfyrirlestur vetrarins en fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri, Háskólans á Akureyri, Myndlistaskólans á Akureyri, Gilfélagsins og Myndlistafélagsins. Næstu fyrirlesarar eru í tímaröð Kristín Margrét Jóhannsdóttir, Klængur Gunnarsson og Freyja Reynisdóttir og Mille Guldbeck.