Þriðjudagsfyrirlestur: Hafdís Helgadóttir

Þriðjudagsfyrirlestur: Hafdís Helgadóttir
Hafdís Helgadóttir.

Þriðjudaginn 16. febrúar kl. 17-17.40 heldur Hafdís Helgadóttir, myndlistarmaður, Þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu á Akureyri undir yfirskriftinni Listabúseta í Marokkó. Í fyrirlestrinum segir Hafdís frá listabúsetu og verkefni í Marokkó sem snérist um samleitni myndlistar og listhandverks og hvernig sú dvöl hafði áhrif á myndlist hennar. Hún mun sýna myndir af eigin verkum og frá Marokkó og fjalla um þætti sem hafa haft áhrif á vinnu hennar, eins og hugleiðingar um formgerðir, náttúru og liti og menningarlegt hæglæti.  

Hafdís Helgadóttir er fædd á Patreksfirði, en býr og starfar í Reykjavík. Hún útskrifaðist af málaradeild í Myndlista- og Handíðaskóla Íslands og er með meistaragráðu frá The Academy of Fine Art (dept. of Time and Space) í Helsinki1996. Hafdís hefur unnið með ýmsa miðla, s.s. vídeó, teikningu, ljósmyndun, innsetningar og málverk og tekið þátt í sýningum á Íslandi, þ.á.m. í Listasafni Íslands, Nýlistasafninu, Norræna Húsinu, Listasafni Árnesinga og Landsbókasafni Íslands og erlendis, í Finnlandi, Færeyjum, Grænlandi, Þýskalandi og Marokkó. Hún hefur unnið og dvalið á gestavinnustofum á Álandseyjum, Gautaborg, Berlín og Marókkó. Hafdís starfaði lengi í Myndlistaskólanum í Reykjavík, sat í stjórn Nýlistasafnsins auk kennslu og verkefna í Listaháskóla Íslands og víðar. 

Enginn aðgangseyrir er á fyrirlesturinn. Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri, Gilfélagsins og Myndlistarfélagsins á Akureyri. Aðrir fyrirlesarar vetrarins eru Aðalsteinn Þórsson, myndlistarmaður, Magni Ásgeirsson, tónlistarmaður, Seung hee Lee, myndlistarmaður, og Vilhjálmur B. Bragason og Sesselía Ólafsdóttir, Vandræðaskáld.