Þriðjudagsfyrirlestur: Herdís Þórðardóttir

Þriðjudagsfyrirlestur: Herdís Þórðardóttir
Herdís Þórðardóttir.

Þriðjudaginn 13. mars kl. 17-17.40 heldur Herdís Björk Þórðardóttir, hönnuður, Þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu, Ketilhúsi undir yfirskriftinni Hönnuður á norðurslóðum - sjálfstætt starfandi á hjara veraldar

Í fyrirlestrinum mun Herdís Björk fjalla um feril sinn og hvernig það er að vinna sjálfstætt sem hönnuður á Íslandi. Hún ætlar jafnframt að segja frá vinnuferlinu og hvernig hún geti í raun unnið hvar sem er í heiminum svo framarlega að þar sé gott netsamband.

Herdís Björk Þórðardóttir útskrifaðist úr fagurlistadeild Myndlistaskólans á Akureyri 2003 og úr grafískri hönnun við sama skóla 2011. Hún útskrifaðist með kennsluréttindi á grunn- og framhaldsskólastigi 2009 frá Háskólanum á Akureyri. 

Herdís Björk starfar sem sjálfstæður hönnuður en sinnir jafnframt stundakennslu í lista- og hönnunarsögu við Menntaskólann á Akureyri. Hún hefur bæði unnið að eigin hönnun sem og tekið að sér verk fyrir aðra, allt frá merkingum til bókahönnunar og umbrots. Herdís Björk hefur einnig tekið þátt í ýmsum sýningum og ráðstefnum en þar má nefna: Arctic Design Week í Finnlandi á vegum Creative Momentum, HönnunarMars og sýningu Listasafnsins á Akureyri, Not – vöruhönnun á Norðurlandi.

Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Gilfélagsins, Verkmenntaskólans á Akureyri, Myndlistafélagsins og Háskólans á Akureyri. 

Þetta er næstsíðasti Þriðjudagsfyrirlestur vetrarins en þann síðasta halda Jeannette Castioni, myndlistarkona, og Ólafur Guðmundsson, leikari, þriðjudaginn 20. mars.