Þriðjudagsfyrirlestur: Päivi Kristiina Vaarula

Þriðjudagsfyrirlestur: Päivi Kristiina Vaarula
Päivi Kristiina Vaarula.

Þriðjudaginn 10. október kl. 17-17.40 heldur finnska textíllistakonan Päivi Vaarula Þriðjudagsfyrirlestur í Listasafninu, Ketilhúsi undir yfirskriftinni Being a textile artist. Þar mun hún fjalla um list sína og starfsferil. Aðgangur er ókeypis. 

Päivi Kristiina Vaarula hefur sýnt víða á Norðurlöndum sem og í Evrópu og Japan, haldið 9 einkasýningar og tekið þátt í 20 samsýningum. Hún starfar um þessar mundir við kennslu í Handverks- og hússtjórnarskólanum á Hallormsstað. Vaarula er með mastersgráðu í textílhönnun og hefur kennt fagið og haldið fyrirlestra víða um lönd síðastliðin 30 ár. 

Þriðjudagsfyrirlestrarnir eru samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Myndlistaskólans á Akureyri, Gilfélagsins, Verkmenntaskólans á Akureyri, Myndlistafélagsins og Háskólans á Akureyri.