Erró

Ferðalög eru einkennandi fyrir líf og list Errós (f. 1932). Hann stundaði listnám í Reykjavík, Ósló í Noregi og Ravenna og Flórens á Ítalíu, þar til hann settist að í París 1958, eftir nokkurra mánaða dvöl í Ísrael. Mörg ferðalög fylgdu þar á eftir og má nefna sögulegar ferðir til New York í Bandaríkjunum, Moskvu í þáverandi Sovétríkjunum og Havana á Kúbu. Í heimsreisu sinni 1971-1972 lá leið hans um Asíu. Frá því á áttunda áratugnum hefur Erró skipt búsetu sinni á milli Parísar í Frakklandi, Bangkok í Taílandi og Formentera á Spáni.

Hvert sem hann fer sankar Erró að sér hundruðum mynda. Hann nýtir þær í samklippuverk sem smám saman verða að málverki. Hugmyndin um ferðalög og tilfærslur birtist í mörgum verkum, þar sem hann notar mótíf eins og flugvélar, lestir, eldflaugar, fugla, hesta eða jafnvel ofurhetjur. Hún kemur ennfremur skýrt fram í seríum er varða „heimsferð Maós“, „geimferðir“ og „konur frá Norður-Afríku“. 

Sýningin er samstarfsverkefni Listasafnsins á Akureyri og Listasafns Reykjavíkur. Sýningarstjóri: Danielle Kvaran.