Auglýst eftir verkum

Í október 2020 mun Listasafnið á Akureyri opna sýningu á verkum Kristínar K. Þ. Thoroddsen. Listasafnið auglýsir hér með eftir verkum Kristínar sem kynnu að hafa varðveist utan fjölskyldu hennar. Vinsamlega hafið samband við Þóru Sigurðardóttur, sýningarstjóra, í tölvupósti: thora@this.is.