Er nokkuð mennskara en röddin?

Þriðjudaginn 10. nóvember kl. 17 heldur tónlistarkonan Þórhildur Örvarsdóttir Þriðjudagsfyrirlestur undir yfirskriftinni Er nokkuð mennskara en röddin? Að þessu sinni verður fyrirlesturinn haldinn í Verkmenntaskólanum á Akureyri, stofu M01.

Í fyrirlestrinum mun Þórhildur fjalla um feril sinn í erlendri kvikmyndatónlist síðastliðin 15 ár og segja frá verkum sínum í máli, hljóði og myndum. Hún mun einnig fjalla um vinnuaðferðir og lýsa ferlinu frá undirbúningi tónlistar að fullgerðri bíómynd þar sem tón- og myndmál rennur í eina heild. Að lokum mun hún útskýra notkun mannsraddar í kvikmyndum og velta upp spurningunni hvort nokkuð sé mennskara en röddin? 

Þórhildur Örvarsdóttir er fædd og uppalin á Akureyri og hóf snemma feril sem söngkona. Hún lærði söng við Tónslistarskólann á Akureyri en útskrifaðist frá Söngskólanum í Reykjavík árið 2000 og frá Complete Vocal Institute í Kaupmannahöfn vorið 2008. Hún hefur komið víða við í tónlist og sungið óperu- og söngleikjahlutverk, popp, þjóðlagadjass og við kirkjulegar athafnir. Þórhildur hefur sungið inn á fjölmargar erlendar kvikmyndir t.d. The Eagle, Mortal Instruments, 300: Rise of an Empire og Man of Steel auk þess að starfa með fjölþjóðlegu hljómsveitinni Torrek. Hún hefur kennt söng og raddþjálfun í Listaháskóla Íslands, Kvikmyndaskóla Íslands, Tónlistarskóla FÍH, Þjóðleikhúsinu, Leikfélagi Akureyrar og Borgarleikhúsinu. Þórhildur býr á Akureyri og starfar sem söngkennari við Tónlistarskólann á Akureyri og sinnir auk þess ýmsum verkefnum í söng- og raddþjálfun. 

Fyrirlesturinn er sjöundi Þriðjudagsfyrirlestur vetrarins. Fyrirlestraröðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Verkmenntaskólans á Akureyri, Háskólans á Akureyri og Myndlistaskólans á Akureyri. Næstu fyrirlesarar eru í tímaröð Haraldur Ingi Haraldsson, Margrét Elísabet Ólafsdóttir, Þórhallur Kristjánsson og Guðrún Pálína Guðmundsdóttir.