Fjölskylduleiðsögn á laugardaginn

Laugardaginn 10. mars kl. 11-12 verður boðið upp á fjölskylduleiðsögn í Listasafninu, Ketilhúsi. Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, fræðslufulltrúi, segir börnum og fullorðnum frá samsýningunni Sköpun bernskunnar 2018 og sýningu Helgu Sigríðar Valdemarsdóttur, Kyrrð.

Að lokinni leiðsögn er gestum boðið að búa til sitt eigið listaverk, innblásið af verkum listamannanna.

Aðgangur er ókeypis í boði Norðurorku sem styrkir sérstaklega safnkennslu og fræðslu fyrir börn og fullorðna í Listasafninu.