Gleðilega þjóðhátíð - opið í dag til kl. 17.

Í dag, þjóðhátíðardaginn 17. júní, er opið í Listasafninu og Ketilhúsinu kl. 10-17. Í Listasafninu stendur nú yfir samsýningin Íslensk samtíðarportrett ? mannlýsingar á 21. öld. Þar gefur að líta hvernig 70 listamenn hafa glímt við hugmyndina um portrett frá síðustu aldamótum til dagsins í dag.

Hugmyndin um portrett felst í því að draga fram á listilegan hátt það sem öðrum er almennt hulið. Að einskorða sig við portrett er ein leið til að skoða á hvaða hátt íslenskir listamenn fjalla um samtíðina. Á þessari sýningu birtist áhorfendum samtíðarsýn 70 listamanna sem hafa tekist á við hugmyndina í víðum skilningi og í áhugaverðu samspili  ólíkra birtingarmynda fást svör.

Í Ketilhúsinu má sjá yfirlitssýningu Gísla B. Björnssonar, Fimm áratugir í grafískri hönnun. Gísli er einn atkvæðamesti grafíker íslenskrar hönnunarsögu. Hann setti á fót auglýsingastofu Gísla B. Björnssonar eftir nám í Þýskalandi 1961 og ári síðar stofnaði hann sérdeild í auglýsingateiknun við Myndlista- og handíðaskólann sem í dag er braut grafískrar hönnunar í Listaháskóla Íslands. Gísli hefur kennt óslitið í fimm áratugi og verið óþreytandi í því að efla fagmennsku og brýna fyrir nemendum að sýna ábyrgð í verki. Hann hefur komið að markaðs- og ímyndarmálum fjölda fyrirtækja og stofnana á Íslandi og búið til mörg af þekktustu vörumerkjum landsins. Má þar nefna merki Sjónvarpsins, Norræna félagsins og Hjartaverndar. Gísli er undir sterkum áhrifum módernisma 20. aldar með áherslu á einfaldleika, notagildi og hagkvæmni.

Á sýningunni er horft yfir feril Gísla og gefur að líta verk frá námsárum hans, tímarit, bókakápur og umbrot og hönnun bóka. Sýnd eru gömul myndbrot af auglýsingastofu Gísla þar sem tækni þess tíma gefur innsýn í vinnu teiknarans og hugmyndasmiðsins.