Leiðsögn í dag kl. 12.15

Í dag, fimmtudaginn 23. október, kl. 12.15 verður leiðsögn í Listasafninu um sýninguna Myndlist minjar / Minjar myndlist sem opnaði um síðustu helgi. Á sýningunni gefur annars vegar að líta muni markaða af sögu, menningu og andblæ liðins tíma og hins vegar ný listaverk unnin af ellefu listamönnum á aldrinum 28-70 ára sem boðið var að vinna þau út frá munum Byggðasafnsins. Aðgangur er ókeypis.