Leiðsögn í gegnum Réttardaga alla vikuna

Boðið verður uppá leiðsögn sem byrjar í Listasafninu og fer í gegnum sýningar Aðalheiðar alla vikuna kl. 14 en Pálína fræðslufulltrúi Sjónlistamiðstöðvarinnar verður með leiðsögn í dag þriðjudag og miðvikudag en Aðalheiður sjálf með leiðsögn á fimmtudag, föstudag og laugardag.  Þann 4. Ágúst koma svo Hjálmar og spila og Aðalheiður verður með gjörning og verður sá viðburður auglýstur sérstaklega fljótlega.