Ljóðalestur alla sunnudaga í september

Alla sunnudaga  í september kl. 14 velur tiltekið ljóðskáld sér listaverk í einu af rýmum Listasafnsins undir yfirskriftinni Til málamynda. Ljóðskáldið mun eiga samtal við valið verk og býr til nýja tilfinningu, nýja upplifun og nýtt pláss í huga þeirra sem vilja ljá augu og eyru. 

Eftirtalin skáld munu velja sér verk og flytja ljóð:

26. ágúst: Eyþór Gylfason, Karólína Rós Ólafsdóttir
og Sölvi Halldórsson.
2. september: Vilhjálmur Bragason.
9. september: Sesselía Ólafsdóttir.
16. september: Ragnheiður Harpa Leifsdóttir.
23. september: Sverrir Páll Erlendsson.
30. september: Ásgeir H. Ingólfsson.

Upplestraröðin Til málamynda hlaut styrk úr menningarsjóði Akureyrar.