Opið alla helgina

Yfirstandandi sýningar Sjónlistamiðstöðvarinnar verða opnar alla helgina kl. 10-17. Í Listasafninu geta áhugasamir skoðað það besta í íslenskri portrettlist frá því um aldamót á sýningunni Íslensk samtíðarportrett ? mannlýsingar á 21. öld. Þar gefur að líta hvernig 70 listamenn hafa glímt við hugmyndina um portrett frá síðustu aldamótum til dagsins í dag. Að einskorða sig við portrett er ein leið til að skoða á hvaða hátt íslenskir listamenn fjalla um samtíðina.

Á meðal listamanna sem eiga verk á sýningunni má nefna Erró, Ragnar Kjartansson, Kristínu Gunnlaugsdóttur, Hallgrím Helgason, Steinunni Þórarinsdóttur, Hugleik Dagsson, Aðalheiði S. Eysteinsdóttur, Baltasar Samper og Ólöfu Nordal.

Sýningin stendur til 17. ágúst og er aðgangur ókeypis.

Þekktustu lógó Íslands

Í Ketilhúsinu má sjá yfirlitssýningu Gísla B. Björnssonar ? Fimm áratugir í grafískri hönnun. Gísli er einn atkvæðamesti grafíker íslenskrar hönnunarsögu. Hann setti á fót auglýsingastofu Gísla B. Björnssonar eftir nám í Þýskalandi 1961 og ári síðar stofnaði hann sérdeild í auglýsingateiknun við Myndlista- og handíðaskólann sem í dag er braut grafískrar hönnunar í Listaháskóla Íslands. Hann hefur komið að markaðs- og ímyndarmálum fjölda fyrirtækja og stofnana á Íslandi og búið til mörg af þekktustu vörumerkjum landsins. Má þar nefna merki Sjónvarpsins, Norræna félagsins og Hjartaverndar.

Á sýningunni er horft yfir feril Gísla og gefur að líta verk frá námsárum hans, tímarit, bókakápur og umbrot og hönnun bóka. Sýnd eru gömul myndbrot af auglýsingastofu Gísla þar sem tækni þess tíma gefur innsýn í vinnu teiknarans og hugmyndasmiðsins.

Sýningin kemur frá Hönnunarsafni Íslands og er opin alla daga nema mánudaga kl. 10-17. Sýningarstjóri er Ármann Agnarsson. Aðgangur er ókeypis.