Safnið að innan
14.08.2023-25.08.2023
Salir 01 02 03 04 05 06 07 09 12
Hvernig lítur Listasafn út þegar verið er að skipta um sýningar? Má skoða geymslur, skrifstofur og verkstæði safnsins? Hvar er móttaka listaverka staðsett í byggingunni? Hvaða verkefni eru á dagskrá þegar sýningu lýkur? Hvað felst í starfi fræðslufulltrúa og verkefnastjóra Listasafnsins? Gestum býðst að skyggnast á bak við tjöldin og fá svör við þessum spurningum. Þeim gefst jafnframt kostur á að hitta listamenn og starfsfólk Listasafnsins, sem er að undirbúa og setja upp sýningar.
Boðið verður upp á leiðsögn þar sem fólk getur fræðst um það sem gerist á milli sýninga og í aðdraganda uppsetningar á nýjum sýningum. Á tímabilinu sem um ræðir er verið að setja upp sjö nýjar sýningar í níu sýningarýmum og þar af leiðandi í mörg horn að líta. Gestir geta því upplifað þennan annasama og spennandi tíma í safninu og fá þannig innsýn í þá starfsemi safnsins sem oftast er ekki aðgengileg gestum.