Fimmtu og síðustu Sumartónleikarnir árið 2017

Sumartónleikar í Akureyrarkirkju
Sunnudagurinn 30. júlí, kl: 17
Akureyrarkirkja
Aðgangur ókeypis

Komið er að síðustu Sumartónleikunum í Akureyrarkirkju sumarið 2017. Á þessum fimmtu tónleikum sumarsins er kemur fram orgelleikarinn Björn Steinar Sólbergsson en hann er einn af stofnendum Sumartónleikanna, en í ár eru 30 ár síðan að fyrsta tónleikaröðin var haldin. 

Björn Steinar Sólbergsson er organisti við Hallgrímskirkju í Reykjavík og tekur virkan þátt í blómlegu listastarfi kirkjunnar. Hann er einnig skólastjóri við Tónskóla Þjóðkirkjunnar þar sem hann kennir jafnframt orgelleik. 

Björn Steinar stundaði tónlistarnám við Tónlistarskólann á Akranesi og í Tónskóla þjóðkirkjunnar í Reykjavík. Meðal kennara hans þar voru Haukur Guðlaugsson og Fríða Lárusdóttir. Framhaldsnám stundaði hann á Ítalíu hjá James E. Göettsche og í Frakklandi við Conservatoire National de Region de Rueil Malmaison hjá Susan Landale þar sem hann útskrifaðist með einleikarapróf í orgelleik (Prix de virtuosité) árið 1986. 
Hann starfaði sem organisti við Akureyrarkirkju í 20 ár þar sem hann vann markvisst að uppbyggingu tónlistarstarfs við kirkjuna. 

Björn Steinar hefur haldið fjölda einleikstónleika hér heima, á öllum norðurlöndunum, í Evrópu og norður-Ameríku. Hann hefur leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands, Kammerhljómsveit Akureyrar, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Sinfóníuhljómsveit Stavanger og The Cleveland Institute of Music Orchestra. Hann hefur hljóðritað fyrir útvarp og sjónvarp og á geislaplötur, m.a. öll orgelverk Páls Ísólfssonar hjá Skálholtsútgáfunni og orgelkonsert Jóns Leifs hjá útgáfufyrirtækinu BIS sem hlaut einróma lof gagnrýnenda.

Björn Steinar hlaut Menningarverðlaun DV 1999, Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2001 og var valinn bæjarlistamaður Akureyrar 2002. Listammannalaun 1999 og 2015.

Á þessu ári kemur Björn Steinar fram á tónleikum á Íslandi, í Noregi, Danmörku og Þýskalandi.

Styrktaraðilar tónleikaraðarinnar eru Sóknarnefnd Akureyrarkirkju, Héraðssjóður Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmis, Menningarsjóður Akureyrar og Tónlistarsjóður. Tónleikarnir eru hluti af Listasumri á Akureyri. 

Við erum hluti af Listasumri!

Sjá nánar HÉR