Fyrsta fimmtudagsævintýrið á Listasumri hefst 29. júní í Hofi

Íslenskar söngperlur í áranna rás
Fimmtudagurinn 29. júní, kl. 20
Menningarhúsið Hof

Á dagskrá eru íslenskar söngperlur. Lög eftir Sigvalda Kaldalóns, Pál Ísólfsson, Sigfús Halldórsson, Eyþór Stefánsson, Árna Thorsteinsson, Jóhann Helgason, Gunnar Þórðarson, Valgeir Guðjónsson og fleiri.

Þórhildur og Helga hafa starfað saman í nokkur ár og eru báðar í kvennahljómsveitinni Norðlenskar konur í tónlist. Þær eru þekktar fyrir einstakan samhljóm og skemmtilega sviðsframkomu og er óhætt að lofa góðri kvöldstund þar sem íslensku söngperlurnar í gegnum árin munu draga fram minningar þeirra sem á hlýða.

Viðburðurinn er unninn í samstarfi við Listasumar og Menningarfélag Akureyrar.

Sjá nánar HÉR