ÍSLENSKAR SÖNGPERLUR Í ÁRANNA RÁS

ÍSLENSKAR SÖNGPERLUR Í ÁRANNA RÁS
FIMMTUDAGINN 29. júní, kl. 20-22
MENNINGARHÚSINU HOFI

Tónleikar með Þórhildi Örvarsdóttur söngkonu og Helga Kvam píanóleikara.

Á dagskrá eru íslenskar söngperlur. Lög eftir Sigvalda Kaldalóns, Pál Ísólfsson, Sigfús Halldórsson, Eyþór Stefánsson, Árna Thorsteinsson, Jóhann Helgason, Gunnar Þórðarson, Valgeir Guðjónsson og fleiri.

Þórhildur og Helga hafa starfað saman í nokkur ár og eru báðar í kvennahljómsveitinni Norðlenskar konur í tónlist. Þær eru þekktar fyrir einstakan samhljóm og skemmtilega sviðsframkomu og er óhætt að lofa góðri kvöldstund þar sem íslensku söngperlurnar í gegnum árin munu draga fram minningar þeirra sem á hlýða.

Ég er hluti af Listasumri!
#listasumar