Flýtilyklar
Sumartónleikar í Akureyrarkirkju
Sumartónleikar í Akureyrarkirkju
Sunnudagurinn 9. júlí, kl: 17
Akureyrarkirkja
Aðgangur ókeypis
Sumartónleikar í Akureyrarkirkju fara fram alla sunnudaga í júlímánuði og er aðgangur ókeypis. Tónleikaröðin fagnar í ár 30 ára starfsafmæli og er næst elsta tónleikaröð landsins.
Á öðrum tónleikum sumarsins kemur fram harmóníkuleikarinn Ásta Soffía Þorgeirsdóttir og flytur verk eftir tónskáld á borð við Bach, Grieg, Þorkel Sigurbjörnsson og Piazzolla.
Styrktaraðilar tónleikaraðarinnar eru Sóknarnefnd Akureyrarkirkju, Héraðssjóður Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmis, Menningarsjóður Akureyrar og Tónlistarsjóður. Tónleikarnir eru hluti af Listasumri á Akureyri.
Ásta Soffía Þorgeirsdóttir hóf nám í harmóníkuleik við Tónlistarskóla Húsavíkur 8 ára gömul og lærði undir handleiðslu Árna Sigurbjarnarsonar til 16 ára aldurs. Þá lá leið hennar í Menntaskólann við Hamrahlíð og fyrsta veturinn í Reykjavík stundaði Ásta Soffía tónlistarnám við Tónlistarskóla FÍH. Næstu tvo vetur nam hún við Listaháskóla Íslands og lauk þaðan diplómagráðu í hljóðfæraleik vorið 2014 auk stúdentsprófs frá Menntaskólanum við Hamrahlíð. Kennari hennar í Reykjavík var German Khlopin. Með síðasta skólaárinu í Reykjavík kenndi Ásta Soffía á harmóníku við Tónlistarskóla Garðabæjar. Haustið 2014 hóf hún Bachelornám í klassískum hljóðfæraleik við Tónlistarsháskólann í Ósló undir handleiðslu Erik Bergene og Frode Haltli.
Ásta Soffía leikur á Sirius harmóníku frá Pigini, hún er smíðuð í Castelfidardo á Ítalíu, árgerð 2013.
Við erum hluti af Listasumri!
#listasumar
Sjá nánar HÉR
Leit

