Flýtilyklar
Vala Yates - Towards My Dreams
Vala Yates - Towards My Dreams
Fimmtudaginn 20. júlí, kl. 20
Menningarhúsið Hof
Vala Yates er klassískt menntuð söngkona og tónskáld. Hún hefur tekið þátt í fjölda fjölbreyttra tónlistarviðburða, sem flytjandi jafnt sem höfundur - allt frá barrokk til nýklassíkur til popptónlistar - og má segja að tónlist hennar sé innblásin frá þessum ólíku áttum. Hún hefur unnið með popptónlistarmönnum á borð við Barða Jóhanns, Keren Ann Zeidel og Ólafi Arnalds, en stígur nú í fyrsta sinn fram með sitt eigið verkefni. Vala leitast eftir að semja einlæga tónlist beint frá hjartanu, þar sem jákvætt viðhorf fær að njóta sín í textasmíðum.
Tónleikar Völu Yates á Listasumri eru fyrstir af 7 tónleikum sem hún heldur á norðurlandi í sumar. Dimitrios Theodoropoulos spilar með henni á gítar.
Viðburðurinn er unninn í samstarfi við Listasumar og Menningarfélag Akureyrar.
Sjá nánar HÉR
Leit

