Flýtilyklar
Síðasta sýningahelgi þriggja sýninga
Framundan er síðasta sýningahelgi sýninga Huldu Vilhjálmsdóttur, Huldukona, Kristjáns Guðmundssonar, Átta ætingar, og samsýningu Þórðar Hans Baldurssonar og Þórunnar Elísabetar, Dömur mínar og herrar.
Á síðasta sýningardegi, sunnudaginn 4. maí, verður annars vegar óformlegt samtal Þórunnar Elísabetar við gesti safnsins um verkið Að vippa um sig vippu, kl. 14-17, og hins vegar safnstjóraspjall þar sem Sigríður Örvarsdóttir segir frá ferli og verkum Kristjáns Guðmundssonar og sýningunni Átta ætingar, kl. 15-16. Aðgangur er innifalinn í miðaverði Listasafnsins.
Hulda Vilhjálmsdóttir – Huldukona
Hulda Vilhjálmsdóttir (f. 1971) útskrifaðist úr málaradeild Listaháskóla Íslands árið 2000 og hefur síðan haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í samsýningum, bæði hér á landi og erlendis. Hún hlaut tilnefningu til Carnegie ART award og 2018 var hún tilnefnd til Íslensku Myndlistarverðlaunanna. Árið 2020 hlaut Hulda Tilberann, myndlistarverðlaun fyrir störf hennar í myndlist síðastliðna tvo áratugi.
Sýningin Huldukona sýnir breidd í verkum Huldu sem endurspeglast bæði í efni og efnistökum. Hún tengir saman tvívíð og þrívíð verk og sýnir samhengi efnistaka og efna, efna sem eru alvöru, steinleir og grófur strigi. í áferðinni er handbragðið, hendur listamannsins sem heiðrar efnið með formvali sínu.
Sýningarstjóri: Hrafnhildur Gissurardóttir.
Kristján Guðmundsson – Átta ætingar
Kristján Guðmundsson fæddist á Snæfellsnesi 1941. Hann er sjálfmenntaður í myndlist og hélt sína fyrstu sýningu á Mokkakaffi í Reykjavík 1968. Hann var einn stofnenda Gallerí SÚM 1969 og veitti því forstöðu fyrsta árið. Síðar flutti Kristján til Amsterdam og bjó þar næstu níu árin, en flutti þá til Hjalteyrar.
Kristján er einn þekktasti fulltrúi hugmyndalistar hérlendis. Í verkum sínum og efnisvali gengur hann oft að mörkum viðtekinna skilgreininga á list. Á ferlinum hefur hann sýnt verk sín víða, en mest í Evrópu og Bandaríkjunum. Kristján er einnig þekktur fyrir bókagerð (e. artist books). Verk hans og bækur er að finna á ýmsum listasöfnum og hann hlaut sænsku Carnegie verðlaunin 2010.
Þessi sýning samanstendur af átta verkum sem eru nú frumsýnd á Íslandi. Ingibjörg Jóhannsdóttir sá um að þrykkja verkin og val á pappír. Öll verkin eru í einu eintaki – einstök.
Sýningarstjóri: Sigríður Örvarsdóttir.
Þórður Hans Baldursson | Þórunn Elísabet – Dömur mínar og herrar
Í verki Þórðar Hans, Karlakórinn í veggnum, glæðir listamaðurinn lafandi svört bindi lífi með notkun hljóðs og hreyfingar. Þá kunna bindin að tákna karlmannlega reglufestu og valdastöðu, en með samspili söngs og hreyfingar kemur verkið áhorfendum á óvart og afhjúpar ýmsar óséðar flækjur á gamansaman hátt.
Í verkinu Að vippa um sig vippu, persónugerir Þórunn sömuleiðis einföld klæði með uppsetningu á blaktandi slæðum sem anga af ilmvatni. Slæðurnar vekja jafnvel hugrenningar um menningarlegt samhengi, lúxus og kvenleika.
Verkin fá áhorfandann til að hugleiða forsendurnar sem hann gefur sér við fyrstu sýn tengdar kyni og sjálfsmynd. Verkin varpa ljósi á hversu flæðandi þetta allt er í eðli sínu, þar sem hugmyndir um kyn eru á sífelldri hreyfingu og standa aldrei í stað.
Leit

