Flýtilyklar
Hundakvöld í Listasafninu
06.06.2025
Fimmtudaginn 12. júní mun Listasafnið á Akureyri í fyrsta sinn bjóða hunda velkomna í sérstaka kvöldopnun ásamt eigendum sínum. Opið verður frá kl. 19 til 22 og ókeypis inn fyrir eigendur í fylgd hunda. Léttar veitingar í boði fyrir fjórfætlinga og fyrstu gestir fá óvæntan glaðning. Á Ketilkaffi verður hægt að kaupa sérstakar veitingar fyrir besta vininn.
Athugið að í safninu þurfa allir hundar að vera í taumi og eru á ábyrgð eigenda sinna. Gæludýr.is styrkir Hundakvöld í Listasafninu.
Leit

