Kristín Gunnlaugsdóttir

Kristín Gunnlaugsdóttir
NÝ AÐFÖNG Í SAFNEIGN
18.05.2026 – 06.09.2026
Salur 12

Nýlega bættust í safneign Listasafnsins á Akureyri fimm verk eftir Kristínu Gunnlaugsdóttur, eitt að gjöf frá listakonunni sjálfri og fjögur frá einkaaðilum. Með þessum viðbótum styrkist listaverkaeign safnsins verulega og gefur nú enn heildstæðari mynd af listferli Kristínar.

Kristín Gunnlaugsdóttir (f. 1963 á Akureyri) nam við Myndlistaskólann á Akureyri og Myndlista- og handíðaskóla Íslands, lærði íkonagerð í Róm og lauk framhaldsnámi frá Accademia di Belle Arti í Flórens árið 1994. Hún hefur starfað að myndlist frá útskrift og tekið þátt í fjölmörgum sýningum hérlendis og erlendis. Verk hennar byggja á sterkri tengingu við klassíska hefð málaralistar en einkennast jafnframt af fjölbreyttum aðferðum og efnisnotkun, þar sem hún vinnur meðal annars með olíu og eggtemperu með blaðgulli, en einnig með kol í teikningum og þráð í útsaumsverkum.

Fyrir átti safnið þrjú verk eftir Kristínu, öll frá afmörkuðu tímabili á tíunda áratugnum. Sú staða gaf takmarkaða innsýn í þróun verka hennar yfir lengri tíma. Nýju verkin fimm eru valin með það að markmiði að gefa heildstæða mynd af listferlinum, endurspegla ólík tímabil, aðferðir og viðfangsefni í listsköpun hennar síðastliðna áratugi.

Verkin spanna vítt svið í ferli Kristínar, allt frá verkum sem mótuðust snemma á ferli hennar og bera með sér klassíska myndhefð, til nýjustu áherslna þar sem bæði fígúratív og óhlutbundin nálgun kemur fram. Verkin bera öll með sér skýr höfundareinkenni, þar sem táknrænt myndmál og efnistök samtímans mætast.

Með þessum nýju aðföngum verður safneign Listasafns Akureyrar betur í stakk búin til að miðla þróun og sérstöðu í list Kristínar Gunnlaugsdóttur og staðsetja framlag hennar í samhengi íslenskrar samtímalistar.