Opnun fimmtudagskvöldið 5. júní

Opnun fimmtudagskvöldið 5. júní
Margrét Jónsdóttir.

Fimmtudagskvöldið 5. júní kl. 20-22 verða tvær sýningar opnaðar í Listasafninu á Akureyri: Samsýning norðlenskra listamanna, Mitt rými, og yfirlitssýning á verkum Margrétar Jónsdóttur, Kimarek – Keramik. Boðið verður upp á listamannaspjall með Margréti kl. 20.45 og leiðsögn um Mitt rými með Katrínu Björgu Gunnarsdóttur, sýningarstjóra, kl. 21.15.

Listasafnið auglýsti fyrr á árinu eftir umsóknum um þátttöku í samsýningu norðlenskra listamanna og sérstök dómnefnd valdi inn verk. Alls voru valin verk eftir sautján listamenn. Sýningunni er ætlað að gefa innsýn í þá fjölbreyttu flóru myndlistar sem tengist Norðurlandi og vekja umræður um stöðu norðlenskra listamanna og myndlistar.

Þátttakendur eru Arthur Ragnarsson, Brynja Baldursdóttir, Egill Logi Jónasson, Gíslína Dögg Bjarkadóttir, Hekla Björt Helgadóttir, Helga Ósk Einarsdóttir, Hlynur Hallsson, Inga Lísa Middleton, Íris Eggertsdóttir, Karl Guðmundsson | Rósa Júlíusdóttir, Katrin Hahner, Kristján Helgason, Rósa Sigrún Jónsdóttir, Sigurður Mar Halldórsson, Sunna Svavarsdóttir, Tereza Kocianova.

Dómnefndina skipuðu Sigríður Örvarsdóttir, safnstjóri Listasafnsins á Akureyri, Erling Jóhannesson, gullsmiður og leikari, Heiðar Kári Rannversson, listfræðingur og sjálfstæður sýningarstjóri, Kristín Scheving, safnstjóri Listasafns Árnesinga, og Katrín Gunnarsdóttir, sýningarstjóri.

40 ára starfsferli fagnað

Í tilefni af 40 ára starfsferli Margrétar Jónsdóttur óskaði Listasafnið eftir samstarfi við almenning um lán á einstaka munum fyrir yfirlitssýningu hennar, Kimarek – Keramik. Viðbrögðin létu ekki á sér standa og safnaðist fjöldi muna. Á sýningunni verða munirnir settir saman í eina innsetningu og er ætlað að spanna tímabilið frá upphafi ferils Margrétar til dagsins í dag.

Margrét Jónsdóttir er fædd á Akureyri 1961. Hún fór ung til Danmerkur og nam leirlist í listiðnaðarskólanum í Kolding, en snéri heim að námi loknu 1985 og stofnaði sitt eigið leirverkstæði í bílskúrnum hjá ömmu sinni. Í rúm 20 ár hefur hún haft vinnustofu í Gránufélagsgötu 48 á Akureyri, þar sem hún vinnur að list sinni og selur eigin verk.

Viðfangsefni Margrétar hafa verið margvísleg í gegnum tíðina og hún unnið jöfnum höndum að gerð nytjalistar, stærri listmuna og listskreytinga. Hún hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga hér heima og erlendis.

Sýningarstjóri: Sigríður Örvarsdóttir.