Listamannaspjall með Þóru Sigurðardóttur

Listamannaspjall með Þóru Sigurðardóttur
Þóra Sigurðardóttir.
Laugardaginn 28. júní kl. 15 verður boðið upp á listamannaspjall með Þóru Sigurðardóttur um sýningu hennar Tími – Rými – Efni, sem opnuð var 17. maí síðastliðinn og stendur til 7. september. Stjórnandi er Ann-Sofie Gremaud, listfræðingur.

Þóra Sigurðardóttir fæddist og ólst upp á Akureyri. Hún lauk námi frá Myndlista- og handíðaskóla Íslands 1981 og framhaldsnámi við Det Jyske Kunstakademi í Danmörku 1991. Hún hefur sýnt víða á Íslandi og erlendis og m.a. hélt hún einkasýningu í Listasafni Íslands 2024. Verk Þóru eru í eigu opinberra safna og einkasafna hérlendis og erlendis, s.s. Listasafns Íslands, Nýlistasafnsins, Listasafns Reykjavíkur, BBK Print Collection í Berlín og Metropolitan Museum of Art Paper/Print Collection í New York.

Á sýningunni má sjá ný verk sem eiga rætur í áratugalöngum áhuga Þóru Sigurðardóttur á efni, rými og teikningu. Líkaminn, næmi hans, efni, staða og hreyfing eru mikilvæg viðfangsefni Þóru. Í verkunum beinist athyglin að náttúruumhverfi lífverunnar: kalki, kolum, málmum, lífrænum himnum, trefjum og úrgangi.

Verkefnið er styrkt af Myndlistarsjóði, Ferðasjóði Muggs, Myndstefi og Starfslaunasjóði myndlistarmanna.