Fjölskylduleiðsögn á sunnudaginn

Fjölskylduleiðsögn á sunnudaginn
Frá sýningu Heiðdísar Hólm.

Sunnudaginn 26. maí kl. 11-12 mun Heiða Björk Vilhjálmsdóttir, fræðslufulltrúi, segja börnum og fullorðnum frá einkasýningum Heiðdísar Hólm, Vona að ég kveiki ekki í, og Salóme Hollanders, Engill og fluga. Að lokinni leiðsögn er gestum boðið að búa til sitt eigið listaverk, innblásið af verkum sýninganna.  

Aðgangur er ókeypis í boði Norðurorku sem styrkir sérstaklega safnkennslu og fræðslu fyrir börn og fullorðna í Listasafninu.

Heiðdís Hólm
Vona að ég kveiki ekki í
23.03.2024 – 18.08.2024
Salur 12 

Heiðdís Hólm (f. 1991) er myndlistarmaður sem vinnur með margs konar miðla, þar á meðal málverk, teikningu og gjörninga. Útgangspunktur verka hennar er oft persónulegar upplifanir og minningar sem verða hráefni ferlisins, sem sveiflast á milli léttúðugrar ýkju, myrkrar sjálfsskoðunar og sköpunar skáldaðra frásagna. Á sýningunni leitar hún að húmornum í dramatíkinni eða dramatíkinni í húmornum og ójafnvæginu sem þar ríkir. Verkin endurspegla margbreytileika mannlegs ástands, áhrif manns á náttúru og afleiðingar þeirra áhrifa.

Heiðdís Hólm útskrifaðist af fagurlistadeild Myndlistaskólans á Akureyri 2016 og er með PgDip í myndlist frá Glasgow School of Art 2020. Þetta er fyrsta einkasýning hennar í safni, en hún hefur haldið og tekið þátt í ýmsum einka- og samsýningum og hátíðum á Íslandi og í Evrópu. Hún er búsett á Seyðisfirði og starfar hjá LungA skólanum.

Salóme Hollanders
Engill og fluga
23.03.2024 – 18.08.2024
Salur 09 

Heimur málverksins býr yfir dulúð og draumkenndum narratívum um merkingu og myndrænt landslag. Í rýminu speglast víddir hins tvívíða flatar og hins þrívíða efnisheims, þar sem form, línur og fletir hafa oltið fram úr striganum inn í rýmið, eins og teningar sem er kastað á spilaborð. Að standa í miðju málverki og upplifa það innan úr því sjálfu, finna fyrir andrúmslofti og efniskennd þess. Að hreyfa sig innan strigans. Flakk einfaldra en óræðra forma vídda á milli hefur í för með sér nýja möguleika og ljóst er að ekki er allt sem sýnist á tvívíðum fleti strigans.

Salóme Hollanders (f. 1996) lauk BA-námi við Listaháskóla Íslands í vöruhönnun vorið 2022. Verk hennar eru gjarnan á mörkum hönnunar og myndlistar, þar sem hún kannar rýmið sem skapast við skörun sviðanna tveggja. Salóme hefur tekið þátt í sýningum hérlendis og erlendis, en sýningin Engill og fluga er fyrsta einkasýning hennar á opinberu listasafni.