AURORA VATNSLITAHÁTÍÐ ÍSLANDS
10.09.2025 – 27.09.2026
Salir 10 11

Aurora Vatnslitahátíð Íslands 2026, er alþjóðleg hátíð sem haldin verður á Akureyri 10.–13. september og í tengslum við hátíðina verður sýning í Listasafninu á Akureyri 10.–27. september.
Heimsfrægum vatnslitamálurum er boðið að sækja hátíðina, en einnig innlendum málurum sem þykja skara fram úr. Þess er vænst að vatnslitamálarar hvaðanæva að, innlendir sem erlendir, heimsæki Akureyri til að njóta þeirra viðburða sem í boði verða. Verndari hátíðarinnar verður listmálarinn Guðmundur Ármann Sigurjónsson og heiðursgestur Nicolás Lopez frá Perú.
Aðrir staðfestir listamenn eru Björn Bernström frá Svíþjóð, Julia Ustinovich frá Póllandi, Julia Barminova frá Portúgal, Kasia Wiercińska frá Noregi og Prafull Sawant frá Indlandi.
Dómnefnd velur úr innsendum verkum sem verða á sýningunni í Listasafninu 10.–27. september. Á hátíðinni sjálfri 10.–13. september verður boðið upp á vinnustofur og námskeið, sýnikennslu og kynningar á vörumerkjum sem tengjast vatnslitum.
Vatnslitahátíðin er haldin í samstarfi við Listasafnið á Akureyri og Vatnslitafélag Íslands.
Verkefnisstjóri: Ragnar Hólm Ragnarsson