A! Gjörningahátíð 2026

A! GJÖRNINGAHÁTÍÐ
08.10.2026 – 10.10.2026
Salir 10 11

A! er fjögurra daga alþjóðleg gjörningahátíð og samstarfsverkefni sem haldin er árlega, nú í tólfta sinn. Hátíðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Leikfélags Akureyrar, Menningarhússins Hofs, Gilfélagsins, Listnámsbrautar VMA og Myndlistarfélagsins á Akureyri, og eru viðburðir haldnir í hinum ólíku menningarhúsum bæjarins. A! er ein örfárra hátíða á landsvísu sem einbeitir sér eingöngu að gjörningalist og var lengst af sú eina. Gjörningalist er afar fjölbreytt listform og segja má að hún sé að sækja í sig veðrið, hafi færst frá því að vera jaðarlist og yfir að miðju viðurkenndrar samtímlistar.

Fjölbreyttir gjörningar og leikhústengd verk af öllum toga eru á dagskránni. Þátttakendur eru ungir og upprennandi listamenn, ásamt reyndum og vel þekktum gjörningalistamönnum og dans- og leikhúsfólki, og eru þeir innlendir sem erlendir. Á hverju ári breytir hátíðin Akureyri í suðupott spennandi gjörninga. Frítt er inn á alla viðburði.

Verkefnisstjóri: Sara Bjarnason.