Listasafnið á Akureyri meðal styrkþega Safnasjóðs 2026

Aðalúthlutun 2026 úr safnasjóði á vegum Safnaráðs fór fram við hátíðlega athöfn í Þjóðminjasafni Íslands fimmtudaginn 16. apríl síðastliðinn. Við athöfnina ávarpaði Arna Kristín Einarsdóttir, skrifstofustjóri menningar og skapandi greina í menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu, gesti og úthlutaði alls 131 styrk að upphæð 182,7 milljónum króna til 51 styrkþega.

Listasafnið á Akureyri kom vel út úr úthlutuninni í ár og hlaut samtals 4,5 milljónir króna til fjögurra verkefna í aðalúthlutun safnasjóðs. Að auki fékk safnið 5 milljónir króna sem seinni hluta öndvegisstyrks, auk 850 þúsund króna í aukaúthlutun vegna þriggja smærri verkefna á árinu.

Heildarstyrkur til safnsins nemur því 10.350.000 krónum og mun fjármagnið nýtast til áframhaldandi þróunar og fjölbreyttra verkefna á vettvangi safnsins á komandi ári.

Við þökkum kærlega fyrir stuðninginn.