Flýtilyklar
Listasafnið á Akureyri þátttakandi í Listahátíð í Reykjavík
16.02.2026
Listasafnið á Akureyri opnar sýningu á Listahátíð þann 4. júní með svissneska listamanninum Zimoun.
Zimoun býr til hljóðinnsetningar og skúlptúra sem gerðir eru úr endurunnu efni sem fellur til í daglegu lífi og iðnaði.
Innsetningin einkennist af magnþrunginni og dáleiðandi stemningu í tengslum við náttúruna. Á sama tíma snertir hún á samfélagslegri gagnrýni, vélrænum ferlum, valdakerfum heimsins og ört vaxandi vélmennavæðingu.
Zimoun virkjar staðbundin efni í gegnum handgert vélrænt ferli. Með krafsi, klóri, banki og titringi umbreytist sýningarsalurinn í Listasafninu í lifandi og ómandi umhverfi.
Sýningin stendur til 6. september og mælum við með að öll sæki sýningu þessa magnaða listamanns.
Leit